friðun miðhálendisins.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari umræðu og vil taka undir með hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að við þurfum að vara okkur á því að friða allt hálendi Íslands fyrir öllum mannvirkjum í einhverri augnabliksstemningu.
Ég tek líka undir það með hæstv. fjármálaráðherra að fleiri valkostir eru í boði fyrir línu yfir Sprengisand til að bæta meginraforkuflutningskerfið. En þeir valkostir geta legið um fleiri náttúruperlur.
Það vill þannig til að verkefnisstjórn um rammaáætlun hefur tvívegis sett Skrokkölduvirkjun í nýtingarflokk. Þar að auki hefur meiri hluti atvinnuveganefndar á Alþingi lagt það til (Forseti hringir.) við þingið að setja þá virkjun í nýtingarflokk.
Ég tek því undir það með hæstv. ráðherra að við skulum fara varlega í að alfriða allt hálendið í augnabliksstemningu. (Gripið fram í: … gera það í dag.)