ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Það hefur komið ítrekað fram einhver afstaða, sem mér heyrist fyrst og fremst hafa komið frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, um að nauðsynlegt sé að ræða þetta mál í einni samfellu.
Svona forvitninnar vegna, hæstv. forseti: Nú var það bara í gær sem ekki ómerkilegra máli en heilbrigðisstefnu fyrir næstu tíu ár, ef ég man rétt, var frestað til að taka annað mál á dagskrá. Hvað er það í þessu máli sem kallar á svo mikla samþjöppun, (BjG: …umræðu, Bergþór. Af hverju ertu að tala um …?) að heilbrigðisstefnan er ekki nægjanlega merkileg til að njóta sömu virðingar í þessum sal? Það er mér alveg fyrirmunað að skilja.
Ég hvet hæstv. forseta til að stýra fundi í samræmi við það sem tilkynnt var hér fyrir rétt tæpum tveimur tímum síðan og (Forseti hringir.) vona að um það verði bærileg sátt.