umræðuefni dagsins.
Herra forseti. Í kjölfar síðustu kosninga var í 1. maí göngunni sérstök grænfánaganga með þúsundum manna, fólki sem hafði áhyggjur af því að með nýrri ríkisstjórn ætti ekki að fara að leikreglum rammaáætlunar. Þær áhyggjur hafa nú orðið að veruleika og fólk með græna fána er komið út á Austurvöll í þessum töluðu orðum því að fólk vill að það sé farið að leikreglum.
Ég vil, herra forseti, áður en umræða um næsta dagskrármál hefst fá betri rökstuðning fyrir því af hverju mat umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á því að sú málsmeðferð sem hér er til umræðu sé ekki í samræmi við lög er hunsað og málið samt talið þingtækt. Ég hélt að það væri hlutverk okkar hér að setja lög en ekki hunsa þau.