138. löggjafarþing — 107. fundur,  16. apr. 2010.

sameining Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands.

508. mál
[14:53]
Horfa

dómsmála- og mannréttindaráðherra (Ragna Árnadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það varðar það að gera úttekt. Ég held að þessi stofnanasameining hafi í rauninni komið það mikið af sjálfu sér að ekki hafi farið fram formleg úttekt þó að vissulega hafi verið bæði starfshópur og stýrihópur að störfum og lagt hafi verið mat á ýmsa kostnaðarliði. Í rauninni sjá menn það fyrir sér að þegar fram í sækir geti hlotist veruleg hagræðing af þessu og ég tala ekki um við að rafvæða Þjóðskrá og starfsemi hennar. En ég get vissulega tekið undir það sjónarmið að í öllum þeim stofnanasameiningum sem verið er að tala um núna verði slíkt vandlega undirbúið og allir þeir þættir metnir sem þörf er á að meta að ég tali ekki um kostnaðinn. En það er kannski líka þannig að ef menn eru að fara yfir það hversu miklum sparnaði ákveðnar aðgerðir skila er spurning hvort menn eru kannski hræddir við að fá hagræðingarkröfu á sig strax frá fyrsta degi. Ég skal ekki leiða getum að því en í þessu sambandi skal minnt á það að ákveðinn kostnaður fylgir þessari sameiningu sem menn sjá samt fram á að geta ráðið við og í tímans rás hlýst af sparnaður sem mun þá glögglega koma fram í ríkisreikningi og hagræðingarkrafa gerð til samræmis.