149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það er fróðlegt að fara í gegnum umsagnir sem bárust utanríkismálanefnd með tillögu til þingsályktunar um orkupakka þrjú, eins og við köllum hann. Það bárust 50 umsagnir, minnir mig, en það sem er fróðlegt og sérstakt er að 70% umsagnanna voru neikvæðar í garð orkupakkans og innleiðingar hans.

Ég ætla að grípa aðeins niður í umsögn fyrrverandi alþingismanns og ráðherra, Hjörleifs Guttormssonar, þar sem hann ræðir sæstrenginn. Hann segir undir þeim kafla í umsögninni sem hann kallar Feluleik með sæstrenginn að til að ná samstöðu um þennan málatilbúnað, þ.e. að koma þessum orkupakka í gegn, hafi verið sett í greinargerð svohljóðandi ákvæði. Fer hann í gegnum að ekki verði lagður sæstrengur nema með leyfi Alþingis, eins og hefur komið fram, en segir að þetta sé í raun og veru sérstæður klisjuþvottur, eins og hann orðar það. Hann segir jafnframt að það hafi verið unnið um árabil að undirbúningi sæstrengs til Íslands við orkumálamarkað Evrópusambandsins. Auk þess nefnir hann Landsvirkjun í því sambandi, HS Orku, að öll þau fyrirtæki (Forseti hringir.) hafi unnið að því að koma á sæstreng.

Hvað segir hv. þingmaður um þá fullyrðingu Hjörleifs Guttormssonar, fyrrverandi ráðherra og alþingismanns, að (Forseti hringir.) hér sé í raun og veru um að ræða feluleik með þennan sæstreng? Þetta er dulbúin (Forseti hringir.) leið og fróðlegt að heyra frá hv. þingmanni hvað það varðar. — Afsakið, herra forseti.