157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Reykjavíkurflugvöllur.

[10:58]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og starfsleyfið sem er nú til endurskoðunar þá byggir fyrirhuguð þrenging á rekstri Reykjavíkurflugvallar á fjölda kvartana um hávaða, ekki hávaðamælingum. Það held ég að sé umhugsunarefni, en þetta er ferli sem er hjá borginni. Það sem er hins vegar mjög áhugavert eru ummæli formanns Flugráðs, Karls Alvarssonar, um gullhúðun. Ég hef átt samtal við hann og er búinn að skoða þetta mál sjálfur og við og við erum búin að koma þeim skoðunum mínum til hæstv. umhverfisráðherra um að þetta sé gullhúðun. Ráðuneytið mitt er búið að skoða þetta og við áttum fund með hæstv. umhverfisráðherra í vikunni og sögðum okkar skoðun á þessu, að þetta væri gullhúðun og að þetta talaði líka inn í frumvarp sem er í þinginu um heilbrigðiseftirlit. Það er gríðarlega mikilvægt að flugvöllum í landinu sé ekki íþyngt með óþarfagullhúðun. Það má vissulega segja að þetta sé líka eldra mál en þegar innleiðingin kom á sínum tíma en það er önnur saga. Það er mjög eðlilegt að það sé gefið út rekstrarleyfi og þá ætti ekki að þurfa starfsleyfi líka. Svo er það bara annars konar eftirlit með starfseminni sem á sér stað. Ég hef ekki meira um þetta að segja en þetta er okkar skoðun og ég vona að þetta fái farsæla meðferð í framtíðinni.