150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[13:41]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Það er gríðarlegur auður í eldri kynslóðum þessa lands. Þetta er kynslóðin sem byggði í raun upp Ísland og erum við sem yngri erum í mikilli þakkarskuld við hana. Sá mannauður er okkur mjög mikilvægur og er það hvorki góð hagfræði né réttlæti að styðja sig ekki við þetta fólk og reynslu þess. Kerfið má ekki vera þannig uppbyggt að það refsi fólki fyrir vinnu sína með skerðingum eða leggi stein í götu þess með öðrum hætti.

Á næstu 25 árum mun fjöldi eldri borgara tvöfaldast hér á landi. Stórar kynslóðir Íslendinga munu fljótlega detta inn á eftirlaunaaldurinn og vegna þessa þurfum við að hugsa þessi atriði upp á nýtt. Aldurspíramídinn í landinu er að snúast við. Í þessum efnum sem og öðrum er valfrelsi lykilorðið. Fólk á að hafa miklu meira val um það hvenær það sest í helgan stein. Leyfum fólki að ráða þessu sjálft í mun meira mæli en nú er gert, en fólk er almennt séð mestu sérfræðingarnir í eigin lífi.

Herra forseti. Mér finnast einnig mjög spennandi þær hugmyndir að gefa fólki meira val um hvenær það tekur sér lífeyri. Það væri hægt að ímynda sér að fólk tæki sér tímabundið hlé á vinnu og þægi lífeyristekjur á miðjum aldri, jafnvel frekar ungt, t.d. þegar heilsan er í mjög góðu lagi eða aðrar aðstæður kalla á slíkt. Síðan tæki þetta sama fólk almenna lífeyrinn sinn seinna en nú er gert.

Herra forseti. Við þurfum að vera skynsöm, sanngjörn og sveigjanleg.