152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[21:34]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég hjó eftir því að hann sagðist styðja það að Stjórnarráð Íslands væri dínamískt en kallaði svo eftir því að það þyrftu að liggja fyrir skýrar ástæður fyrir breytingum á Stjórnarráðinu. Mig langar að spyrja hv. þingmann, í ljósi þess að eðli ráðuneyta er annað en hefðbundinna ríkisstofnana: Ráðuneytin eru þær stofnanir sem fara með stefnumótun í umboði ráðherra sem hefur pólitískan meiri hluta á bak við sig og er þá ekki eðlilegt að það sé hin pólitíska forysta sem taki ákvörðun um að gera breytingar á Stjórnarráðinu vegna þess að ráðuneyti lúta öðrum lögmálum en hefðbundnar ríkisstofnanir að þessu leyti?

Síðan langar mig að benda hv. þingmanni á það, af því að hann vitnaði í rannsóknarskýrsluna, að það er mjög margt í rannsóknarskýrslu Alþingis sem ekki er tekið fram í greinargerðinni, t.d. það að bolmagn Stjórnarráðsins ræðst ekki af heildarfjölda starfsfólks heldur af getu starfsfólksins til að takast á við þau krefjandi verkefni sem Stjórnarráðið þarf að takast á við. (Forseti hringir.) Og af því að hv. þingmaður nefndi þá stöðu sem hér var uppi eftir hrun þegar þurfti að skera verulega niður í Stjórnarráðinu og í öllum ráðuneytum, (Forseti hringir.) að þá var að sjálfsögðu eðlilegt að ráðast fremur í fækkun ráðuneyta. En sem betur fer hefur heldur ræst úr þeirri stöðu á undanförnum árum.