152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[21:58]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferðina. Það er tvennt sem mig langar að spyrja að í fyrra andsvari. Í fyrsta lagi deili ég þeirri reynslu með þingmanninum að vera fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra og kannast við mikið í innvolsi ráðuneytanna sem má bæta og einmitt þetta með ósýnilegu múrana á milli ráðuneyta er eitthvað sem hefur verið talað um árum og áratugum saman að þurfi að laga. En ég velti því fyrir mér hvort hér sé ekki verið að byrja á kolröngum enda. Hér er verið að leggja fram þingsályktunartillögu um skiptingu ráðuneyta. Hér er verið að leggja til endapunktinn á einhverju sem ætti að vera langt ferli, sem ætti að vera greining á því hvernig við leysum upp þessa múra, hvernig við tryggjum réttindi starfsfólks ráðuneytanna, hvernig við gerum Stjórnarráðið kvikara, sem það þarf að verða, en til þess þarf að endurskoða lög um Stjórnarráðið frá grunni. Er þessi öfugsnúningur á aðgerðaröðinni hér ekki einmitt til marks um að þetta snýst ekkert um þarfir almennings eða ráðuneytanna sem þjóna almenningi heldur akkúrat bara pólitíska stólaleikinn sem undir er?

Svo tók ég dálítið til mín það sem þingmaðurinn sagði um hversu undarlegt það væri að hafa fjarskiptin slitin frá öðrum innviðum samfélagsins, það á einhverjum óljósum forsendum þess að fjarskiptin væru vettvangur eða verkfæri nýsköpunar og fjórðu iðnbyltingarinnar. Mætti ekki með sömu rökum taka sjávarútveginn, skipulagsmálin, skapandi greinar og alls konar mál? Af hverju er þessu ekki bara öllu húrrað í eitt ráðuneyti ef það er ástæðan?