155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

stjórnarsamstarfið og ástandið í þjóðfélaginu.

[15:12]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Eins og ég segi þá setur hv. þingmaður mörg mál á dagskrá og beinir til mín og eitt var það að ég hafi brotið lög vegna þess að ég steig inn í mál fatlaðs einstaklings sem átti að flytja frá landinu. Það er af og frá að ég hafi brotið lög. Ég ætla að fá að leiðrétta það hér og nú. Hins vegar hef ég sem dómsmálaráðherra yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir í þeim málaflokkum sem heyra undir mitt ráðuneyti og á þeim grundvelli getur ráðherra stöðvað framkvæmd ef upp kemur réttmætur vafi um lögmæti þeirra framkvæmda. Það var það sem ég framkvæmdi þennan örlagaríka morgun. Höfum í huga að það höfðu borist athugasemdir frá ráðherra fatlaðs fólks á Íslandi varðandi framkvæmd gagnvart fötluðum einstaklingi og þá stóð ég frammi fyrir því að annaðhvort taka þá óafturkræfu ákvörðun að hafna þeirri beiðni án þess að heyra þau sjónarmið (Forseti hringir.) sem lágu að baki efasemdum ráðherra fatlaðs fólks — þannig að ég ákvað að gera það. (Forseti hringir.) Hæstv. ráðherra verður hins vegar að svara því hverjar þessar efasemdir voru.