meðferð sakamála.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir andsvarið. Þó að það hafi kannski ekki verið beint um frumvarpið sem ég var að mæla fyrir ætla ég bara að taka heils hugar undir með þingmanninum, að þegar við horfum framan í breytta samfélagsgerð og nýjar ógnir í okkar annars ágæta samfélagi er það skylda okkar að gera það sem við getum til að ná sem bestum tökum á því. Þetta er auðvitað óværa sem enginn vill í okkar góða samfélagi. Við höfum verið með augun á þessari þróun sem er ógnvænleg. Það var mjög mikilvægt hvernig lögreglulög voru samþykkt hér undir þinglok í júní þar sem lögreglan fékk ákveðin tæki til að geta haft betra eftirlit með skipulagðri brotastarfsemi og geta átt betra samstarf við Norðurlöndin því að heimurinn er lítill í augum þessara glæpahópa, það er bara staðan. Hæstv. dómsmálaráðherra er í miklu samstarfi við Norðurlöndin hvað þetta varðar.
Og þegar hv. þingmaður kemur inn á það að skoða alvarlega með lögreglunni hvar skórinn kreppir og hvar við getum gert betur þá erum við nokkuð reglulega í því samtali. Þingflokkurinn fór fyrir tveim vikum í heimsókn til lögreglunnar til að fá að heyra frá þeim beint hverjar væru nýjustu áskoranir þeirra á ákveðnum tíma. Við þurfum að aðlaga okkur að því og við þurfum að forgangsraða fjármagni og þetta eru stanslausar áskoranir og viðvarandi verkefni, myndi ég segja, því miður. En það stendur ekki á okkur í Sjálfstæðisflokknum að taka þetta mjög alvarlega. Við höfum talað mjög skýrt um það að þetta þurfi að taka föstum tökum. En frumvarpið sem ég var að mæla fyrir bendir á annan anga málsins sem er að við verðum líka að passa upp á mannréttindi þeirra sem eru kannski ekki í þessari brotastarfsemi en eiga samt skilið athygli okkar til að við getum verið gott samfélag.