155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

43. mál
[18:17]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur hjartanlega fyrir þetta frábæra mál sem hún kemur með inn í þingið. Það sem vefst svolítið fyrir mér er hvernig stendur á því, miðað við hversu oft og lengi er búið að berjast fyrir því að koma þessu máli í gegn og miðað við að hv. þingmaður situr í stjórnarflokki í ríkisstjórn — hvað heldur hv. þingmaður að standi í vegi fyrir því að hlutirnir nái fram að ganga? Hverjir eru það innan stjórnarliðsins sem standa í vegi fyrir því að við reynum að gera eitthvað og gera heildstæða úttekt og í rauninni taka heildstætt utan um þessa einstaklinga, án þess að setja alltaf málin í nefnd?

Hv. þingmaður er með tölur á blaði um það, eins og ég og fleiri, hve margir eru raunverulega að bíða eftir úrræðum, hve margir eru að deyja á biðlistum. Við fáum í raun aldrei rauntölur um það vegna þess að það er ekki alltaf skráð þegar einhver deyr ótímabærum dauða vegna fíknisjúkdóms síns. Ég velti fyrir mér og langar að vita það, þetta vakti upp spurningu hjá mér: Eins og hv. þingmaður hefur verið ötull talsmaður fyrir þennan viðkvæma og í raun skelfilega málaflokk þar sem við ættum öll að vera áfram um að taka höndum saman og koma almennilega til móts við sjúklingana okkar sem eru að glíma við þennan mikla vanda, hvað hefur staðið í veginum, hv. þingmaður? Ég bara skil það ekki. Mig langar svo að fá að vita það, vegna þess að ég hélt að það væri þægilegra að vera þingmaður í stjórnarliðinu, og hver er það þá í stjórnarliðinu sem er raunverulega að standa í vegi fyrir því að við getum hjálpað fólki?