156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

51. mál
[18:24]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka kærlega fyrir þessa umræðu hér í dag. Hún hefur verið í senn mjög áhugaverð og upplýsandi. Það er aðeins tregi yfir umræðunni og maður finnur það. Ég vil þakka sérstaklega flutningsmanni tillögunnar, Ingibjörgu Isaksen, og þakka henni fyrir í rauninni þrautseigjuna, að hafa haldið þessu máli gangandi. Einnig vil ég þakka kærlega viðveru hæstv. heilbrigðisráðherra, Ölmu D. Möller, og jákvæðar undirtektir hennar við þetta frumvarp.

Ég ætla að taka kannski dálítið praktískan vinkil á það sem hér hefur verið til umræðu í dag. Mig langar að nefna þá aðallega dauðsföll vegna óhappaeitrana, af því að fyrra starf var nú það að ég er lyfsali og vil fá að nefna það að mörg svona mál eru gríðarlega erfið fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Það er oft einhver sem ber ábyrgð á lyfjaávísun og jafnvel kannast starfsmenn lyfjabúða við að hafa afgreitt viðkomandi einstakling, sérstaklega þegar um er að ræða minni samfélög.

Ég vil líka þakka heilbrigðisyfirvöldum samhliða því fyrir að hafa haldið vöku sinni í málefnum ópíóíða. Það hefur verið unnið markvisst að því mörg undanfarin ár að reyna að draga úr lyfjaávísunum á ópíóíðum, bæði í formi þess að það er orðið erfiðara að fá lyfjaávísun og svo hefur verið dregið úr hámarksmagni sem heimilt er að ávísa hverju sinni sem minnkar þá magn ópíóíða í umferð. Ég held að ég geti sagt út frá reynslu minni sem lyfsali að ég óttast það að miklu af þessum ópíóíðum sem verið er að nota sé í rauninni ekki ávísað á Íslandi, þetta séu lyf sem séu flutt inn með einhverjum hætti. Það var í umræðu fyrir ekki mjög mörgum árum síðan hvernig aðgengi væri háttað að ópíóíðum t.d. á Spáni og bárust ópíóíðar greinilega í miklu magni til landsins.

Einnig langar mig að ávarpa það að það eru til mótefni við ópíóíðaeitrun. Það hefur líka verið unnið markvisst í því að gera þau lyf aðgengileg á Íslandi með því að dreifa þeim þá á staði þar sem vitað er að ópíóíða er neytt og til aðila sem sinna þeim sem hafa átt í vandræðum með fíknisjúkdóma. En okkur hefur enn ekki tekist að vera með nefúðann í lausasölu. Ég veit ekki til þess að það standi til en það væri auðvitað góður kostur að eiga möguleika á því að fá þessi lyf afgreidd í lausasölu.

Annars vil ég bara þakka kærlega fyrir góða umræðu og ég þykist viss um að þessi þingsályktunartillaga muni fá brautargengi.