157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

verðbréfun.

100. mál
[17:31]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir hennar yfirferð og einnig fyrir vinnu efnahags- og viðskiptanefndar í þessu máli. Mér þykir mjög gott að sjá hversu aðhaldssöm nefndin hefur reynst í störfum sínum, sérstaklega hvað varðar þau mál sem stundum eru nefnd í þessum sal innleiðingarmál. Þegar rætt er í þessum sal um gullhúðun er oft um að ræða að einhverju leyti málefnalegar ábendingar íslenskra t.d. eftirlitsaðila um hluti eins og sektarheimildir. En það verður að vera, eins og fram kom í máli hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, eitthvert samhengi á milli umfangs refsinga og þá þeirra brota sem framin hafa verið. Ég vil þess vegna aftur hæla nefndinni fyrir þeirra vinnu og hvetja einmitt til ákveðins aðhalds í því að hlusta á slík sjónarmið, horfa til eðlilegs meðalhófs þegar kemur til að veita slíkar heimildir.