132. löggjafarþing — 11. fundur,  19. okt. 2005.

Jöfnun flutningskostnaðar.

107. mál
[14:57]
Hlusta

Jón Gunnarsson (Sf):

Frú forseti. Hér var lögð fram einföld spurning en fram kom skrýtið svar. Spurt var hvað liði aðgerðum til að jafna flutningskostnað og hæstv. ráðherra fór hér yfir það að ákveðið hefði verið í ríkisstjórn á ríkisstjórnarfundi að hausti til árið 2003 að endurgreiða að hluta til flutningskostnað til að jafna verð á landsbyggðinni, haustið 2003. Hæstv. ráðherra fór síðan yfir það í nokkuð löngu máli að málið hefði verið lagt fyrir ESA og að menn hefðu velt fyrir sér hvernig það kæmi að þeim reglum en sagði svo að í júlí 2004 hefði þetta aftur verið tekið fyrir í ríkisstjórn og síðan hefði ekki náðst niðurstaða.

Hvað þýðir þetta á mæltu máli? Hvaða ráðherrar voru tilbúnir til að gera þetta og standa við þetta loforð og hvaða ráðherrar ekki tilbúnir til að gera þetta og standa við þetta loforð? Við hljótum að eiga kröfu á því að það verði upplýst vegna þess að þetta mál er búið að vera á borðum ríkisstjórnarinnar síðan 2003 og axarsköftin og vitleysan ríða ekki við einteyming í þessu máli frekar en mörgum öðrum hjá núverandi ríkisstjórn.