fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Mér þykir vænt um að heyra orð hæstv. ráðherra um að þörf sé á að ræða þessi mál og að þau verði að sjálfsögðu rædd. Þetta snýst held ég ekki á nokkurn hátt um að einhver hér inni sé þeirrar skoðunar að þessi eingreiðsla sé óþörf eða slæm hugmynd. Þetta snýst náttúrlega um forgangsröðun og þetta snýst um einhvers konar aðferðafræði. Það er ekki síst sú orðræða sem við sem hér höfum tekið til máls höfum haft uppi. Okkur þætti vænt um að fá hæstv. félagsmálaráðherra hingað í salinn til að ræða hlutina. Auðvitað er það þannig með fjárheimildir innan hvers ráðuneytis að þær eru væntanlega sameiginleg ákvörðun. En síðan geta ráðherrar líka forgangsraðað innan síns ramma.
Ég er þeirrar skoðunar að það færi býsna vel á því að nýr ráðherra félagsmála kæmi og hæfi orðræðu sína um þann málaflokk akkúrat hér og nú um þetta mál vegna þess að þau gerast eiginlega ekki dýpri og mikilvægari en akkúrat kjör þessa verst setta hóps núna undir lok árs, í aðdraganda jóla. Ég tek því undir þessa beiðni og vona að hæstv. ráðherra sjái sér fært að mæta hingað og taka þátt í talinu.