breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Stjórnarráðið er tregbreytanlegt. Besti tíminn til að gera breytingar á verkefnaskiptingu Stjórnarráðsins, myndi ég segja, eftir að hafa setið í þremur ríkisstjórnum, er ávallt í upphafi kjörtímabils. Það er best að leggja af stað í vegferð nýs kjörtímabils með nokkuð skýra verkaskiptingu undir. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um í síðara andsvari er hver sé skoðun hans á því fyrirkomulagi sem var hér lengst af, þ.e. að hafa ráðuneytin skrifuð út í lög sem gerir að sjálfsögðu allar breytingar torsóttari, eða hinu norræna fyrirkomulagi, þar sem framkvæmdarvaldið tekur í raun þessa ákvörðun án aðkomu þingsins, og við á Íslandi erum nú með einhvers konar millistig milli gamla íslenska kerfisins og hins norræna. Telur hann að Alþingi eigi að hafa um það að segja hvernig Stjórnarráðinu er skipt eða telur hann þetta vera málefni framkvæmdarvaldsins? Ætti framkvæmdarvaldið á móti að hafa skoðun á uppskiptingu í nefndir Alþingis? (Forseti hringir.) Þetta snýst um þrískiptingu ríkisvaldsins að einhverju leyti og ég er forvitin að heyra hvað hv. þingmanni finnst.