breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Þegar verið var að skipta upp þessum ráðuneytum og færa til málaflokka var sú sem hér stendur formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sem fjallaði um þetta mál. Sú nefnd fékk til sín fjölda gesta og vegna þess að hæstv. forsætisráðherra, þáverandi og núverandi, hafði sagt í ræðu í 1. umr. að kostnaðurinn við uppskiptingu yrði 70 milljónir, var spurt út í það sérstaklega við vinnslu nefndarinnar. Það kom hins vegar í ljós við málsmeðferð að fyrir utan þessar 70 milljónir var gert ráð fyrir að kostnaðurinn við að færa jafnréttismálin inn í forsætisráðuneytið yrði 200 milljónir til viðbótar, við það að búa til þessa skrifstofu. Þetta kom í ljós við málsmeðferð í nefndinni af hálfu fulltrúa Stjórnarráðsins og er vísað til þess í þessari ræðu hér og var um það fjallað í þingsal.