155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

stefna ríkisstjórnarinna vegna hörmunganna í Palestínu.

[15:37]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka góðar óskir. Ég hef alltaf lagt áherslu á, um það sem hér er til umræðu, að það er mín eindregna pólitíska skoðun að þarna sé um þjóðarmorð að ræða. Það taka félagar mínir undir á landsfundi VG núna um helgina. Það er lífsins gangur í ríkisstjórnarsamstarfi að það eru ekki endilega nákvæmlega sömu meiningarnar þvert yfir hópinn. En ég vil segja það að mér finnst mikilvægt, bæði sem stjórnmálamanni og sem forystumanni núna í VG, að segja hlutina eins og þeir eru. Mér hefur líka fundist mikilvægt í þessu samhengi öllu saman að glæpir eins hóps réttlæta ekki glæpi annarra eins og stundum er látið að liggja í þessari umfjöllun. Þó verð ég að segja að mér finnst mikilvægt líka að við höldum því til haga, þó að það fylli mann magnleysi í þessari umræðu allri af því að þessar hörmungar virðist engan endi ætla að taka, að því miður leysir hvorki ríkisstjórn Íslands né Alþingi Íslendinga deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs. En mér finnst að við eigum sem frjáls og fullvalda og friðelskandi þjóð að tala um það hvar sem við getum.