sjúkratryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svarið og get ekki annað en verið innilega sammála honum. Ég legg áherslu á að við getum ekki látið þá sem eru vinnandi bíða of lengi vegna þess að það getur aldrei skilað neinu nema slæmu.
Hin spurningin er um það að verið er að stytta biðtíma þeirra sem flytja til landsins eftir því að fá heilbrigðisþjónustu úr sex mánuðum í þrjá mánuði. Ég spyr: Hefði ekki verið hægt að gera þetta þannig að þeir sem virkilega þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, eins og öryrkjar og jafnvel eldri borgarar, og eru að koma til landsins, fengju bara sjálfkrafa að fara strax inn í þetta? Ég held að það sé svolítill ábyrgðarhlutur fyrir þá sem lifa hér, og við vitum að margir öryrkjar eru í fátækt og jafnvel sárafátækt, að fá þennan rétt um leið og þeir koma til landsins, ef þeir hafa verið erlendis og koma til landsins fái þeir þennan rétt til að fara inn í sjúkratryggingakerfið strax en þurfi ekki að bíða neitt.