155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

260. mál
[16:04]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir þessa spurningu um kerfistregðu. Hún er vissulega almenn en hún á rétt á sér. Ég hef heyrt þetta frá Félagi heimilislækna og þá snýr það að ýmiss konar tilvísunum, ýmiss konar vottorðum sem snúa að því t.d. að staðfesta örorku og notkun á ýmiss konar hjálpartækjum. Þetta verður mikill skógur og ég hef verið að leggja mig fram um að setja mig inn í þetta til að skilja þetta. Við erum með mikla vinnu í ráðuneytinu akkúrat núna og kannski horfum þannig á það að oft gerist það þegar við byggjum upp kerfin okkar að við setjum upphaflega einhver markmið með því að setja eitthvert kerfi á en svo þegar tímar líða og umfangið eykst þá verða kerfin einhvern veginn yfirsterkari markmiðunum sem upphaflega voru sett, þau eru farin. Við erum núna í mjög mikilli vinnu, líka á vinnumarkaði og í skólum og með Félagi heimilislækna, (Forseti hringir.) við það að reyna einmitt að vinda ofan af þessari kerfistregðu, held ég að hv. þingmaður hafi kallað það. (BLG: Kerfiskergja.)— Kergja.