viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir andsvarið og fyrir að lýsa yfir stuðningi við þetta góða mál. Ég sakna þess vissulega að hv. þingmenn Flokks fólksins séu ekki meðal flutningsmanna á frumvarpinu en það er svo sem hægt að lýsa yfir stuðningi með öðrum hætti en þeim.
Hv. þingmaður spyr að því hvað standi í vegi fyrir framgangi þessa góða máls. Eins og ég fór yfir í framsögu minni áðan þá hef ég ekki skynjað annað en mjög góðan vilja af hálfu hæstv. heilbrigðisráðherra og, eins og hv. þingmaður kom inn á, frá fjölmörgum öðrum þingmönnum, hvort sem þeir eru í meiri hluta eða minni hluta. Ég fór m.a. yfir það að gripið hefur verið til ýmissa aðgerða og nú stendur yfir heildarskoðun á þessu kerfi. Það sem ég held að helst skorti í þessum málaflokki er þessi heildarsýn, eins og ég kom inn á í framsögunni. Þetta er svo brotakennt kerfi. Má þessi málaflokkur vera brotinn? Því miður ætla ég að því valdi að hluta til ákveðnir fordómar í kerfinu í garð þessa sjúklingahóps sem fær ekki nægilegan stuðning og umönnun af þeim sökum. Engu að síður hef ég skynjað mikinn velvilja, en flutningsmenn þessarar tillögu hafa haft af því áhyggjur að sjónum sé ekki beint nægjanlega að hverjum hópi fyrir sig, það sé ekki verið að greina sjúklingahópinn heldur meðferðarúrræðin og hvernig er hægt að púsla vandanum saman við þau meðferðarúrræði sem þegar eru til staðar. Því stóðu mínar vonir til þess að sjónum yrði í meira mæli beint að þessum mismunandi hópum.