starfstengdir eftirlaunasjóðir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það er alveg rétt að þegar maður á ekki sögu frá Íslandi sem maður tengir við þá þarf maður að setja sig í ákveðinn gír en þetta er bara hluti af EES-samningnum og það er skylda nefndarinnar að vinna þetta faglega, sem ég tel að hún hafi gert. Það var mikill samhugur í nefndinni og við áttum mjög gott samráð, bæði við Seðlabankann og ráðuneytið, þegar við unnum að okkar tillögum. En það er auðvitað eins og það er, það gætu komið fleiri ábendingar úr samfélaginu þegar málið er sent út til umsagnar núna eftir að það kemur til nefndar. Það gætu komið ný sjónarmið á þetta frumvarp, hver veit? Ég er ekki endilega viss um það en nefndin er alla vega vel nestuð eftir góða umfjöllun í vor og ég hlakka bara til samstarfs í nefndinni um þetta mál sem og önnur mál sem hér hafa verið til umræðu í dag.