157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1129, um skatta- og gjaldahækkanir, frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1163, um veitingu sérfræðileyfa, mönnun í undirsérgreinum og mat á erlendu sérnámi lækna, frá Ingibjörgu Isaksen.