þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mig langar að taka undir orð kollega minna í stjórnarandstöðunni varðandi leyniskjölin. Það er afskaplega brýnt að leynd verði aflétt af þessum skjölum þannig að við getum haft allt uppi á borðum í þessari umræðu. Sú sem hér stendur á ekki sæti í utanríkismálanefnd þannig að ég á engan kost á því að kynna mér þessi skjöl — og ég er alþingismaður. Ég tala nú ekki um þjóðina, þjóðin á fullan rétt á að fá aðgang að þessu líka. Hvernig á hún annars að geta tekið afstöðu til þessara aðlögunarviðræðna sem ríkisstjórnin vill koma í gegnum þingið? Hvernig á hún að geta það? Ég tek undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni að nei er líka svar. Þora fulltrúar ríkisstjórnarinnar ekki að koma hér upp og segja: Við ætlum ekki að afhenda þessi gögn. Er það málið? Þorið þið ekki að koma hér upp og segja það?