aðgerðir ríkisstjórnar í efnahagsmálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Auðvitað er mjög mikilvægt að þingið sinni störfum sínum allt þar til þing fer í hlé einhvern tímann í sumar og að sjálfsögðu eru stór mál undir sem er verið að ræða og kannski eitt af þeim stærstu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar þar sem svo sannarlega eru boðaðar aðgerðir, bæði á tekju- og gjaldahlið, til að slá á þenslu.
Hv. þingmaður talar hér um einhvers konar mistök, sem ég ætla bara að hafna að hafi verið gerð. Við komum út úr heimsfaraldri með þá einstöku stöðu að kaupmáttur allra tekjutíunda jókst í gegnum heimsfaraldur. Við beittum ríkissjóði af fullum þunga, jafnvel of mikið, segja menn núna, á sama tíma og við vorum gagnrýnd fyrir að ganga ekki nógu langt. Síðan þá höfum við gripið til markvissra aðgerða til að kæla hagkerfið, hægja á fjárfestingu og boðum aukið aðhald á tekju- og gjaldahlið.
Hv. þingmaður ræðir hér kjarasamninga og að það sé mikilvægt að þeir verði velferðarsamningar. Ég ætla að fá að rifja upp fyrir hv. þingmanni að lífskjarasamningarnir sem voru gerðir 2019 voru gerðir með ríkulegri aðkomu stjórnvalda en lengi hafði sést. Þar voru ótal breytingar boðaðar og staðið við, hvort sem það var breyting á skattkerfinu og upptaka þrepaskipts skattkerfis, skattalækkun fyrir tekjulægstu hópana, uppbygging á húsnæðismarkaði, lenging fæðingarorlofs eða efling barnabótakerfisins. Ef hv. þingmaður hefur einhverjar áhyggjur af því að hér verði ekki áfram unnið í góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins, sem við höfum gert hingað til og hyggjumst gera áfram, þá þarf hún ekki að hafa áhyggjur af því. Þeir samningar sem gerðir voru síðast voru skammtímasamningar vegna eðlilegrar óvissu um verðbólguþróun.
En hafandi sagt þetta þá ætla ég bara að taka undir með hv. þingmanni: Brýnasta verkefnið er að verðbólga fari niður, og hún mun fara niður. Við erum auðvitað í þeirri stöðu hér að atvinnustig er mjög hátt, atvinnuleysi mjög lágt, umsvif í kerfinu eru mjög mikil og það er að sumu leyti góð staða miðað við ýmis önnur ríki sem við berum okkur saman við. En hins vegar er alveg augljóst að verðbólgan og vaxtastig er það sem leggst mest á tekjulægstu hópana og þess vegna höfum við boðað sérstakar aðgerðir til að mæta þeim, m.a. sérstaka vörn fyrir öryrkja á (Forseti hringir.) miðju ári í anda þess sem ríkisstjórnin gerði um leið og verðbólga fór að láta á sér kræla.