Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar með seðlabankastjóra 9. maí síðastliðinn spurði ég út í stöðu fjármálaeftirlitsins innan Seðlabankans. Þar vísaði ég í athugasemdir ytri matsskýrslu um frammistöðu Seðlabankans sem unnin var af þremur erlendum sérfræðingum en í henni segir að fyrirkomulag æðstu stjórnar feli oft í sér of vítt valdsvið og áhættu vegna lykilmanns sem er þá seðlabankastjóri. Þar stóð líka að skýrsluhöfundar hefðu ekki kynnst í öðrum seðlabönkum stjórnunarháttum sem víkja í svo miklum mæli frá stjórnunarfyrirkomulaginu. Ég spurði seðlabankastjóra hvernig hann hygðist bregðast við gagnrýni af þessu tagi. Seðlabankastjóri sagði að það mætti velta fyrir sér hversu nátengt fjármálaeftirlitið eigi að vera öðrum störfum Seðlabankans. Ég tek undir það og tel að við getum ekki bara blásið á þessar alvarlegu athugasemdir. Í frumvarpinu sem við greiðum atkvæði um er ekki brugðist við þeim heldur þvert á móti er núverandi fyrirkomulag fest enn frekar í sessi. Þess vegna get ég ekki greitt atkvæði með frumvarpi þessu.