149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

umræða um þriðja orkupakkann.

[13:34]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Virðulegur forseti. Eins og hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé veit endurnýjum við reglulega umboð okkar til að sitja hér og þegar kjósendum finnst nóg komið segja þeir það við okkur. Auðvitað er þingmönnum frjálst, þar á meðal hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé, að skipta um starfsvettvang. Það er honum frjálst að gera líkt og öllum öðrum. Hér hefur ekkert verið kvartað yfir þessum næturfundum. Meira að segja hefur verið brugðist við ábendingum um að fækka andsvörum og öðru slíku. Hins vegar er óumdeilt að ef forseti kýs að taka önnur mál fram fyrir þetta mál og afgreiða þau — við vitum alveg að það eru önnur mál sem þingmenn og ráðherrar hafa áhuga á að klára — er það í hans valdi að setja þetta mál til hliðar og taka t.d. heilbrigðisstefnuna eða laxeldi eða hvað þetta er, ef menn vilja klára slík mál. Það stendur ekki á okkur að hleypa slíkum málum fram fyrir þetta mál ef menn vilja breyta dagskránni með þeim hætti. En (Forseti hringir.) um það er ekkert meira að segja. Það er ekki flóknara en það.