151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

þingsköp Alþingis.

850. mál
[12:20]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Síðustu tvö skipti sem voru kosningar á undarlegum tíma var það sem gerðist ekki val þeirrar ríkisstjórnar en það var sérstakt val þessarar ríkisstjórnar að hafa kosningar á þessum tíma, sem er mjög óþægilegt fyrir fjárlagaferlið. Það er allt sett upp til þess að fjárlög séu komin til þingsins til umræðu að hausti. Það er hægt að hafa það öðruvísi en það er bara ekki þannig akkúrat eins og er. Fjármálaráðuneytið hefur frætt okkur um það í fjárlaganefnd að unnið verði að grunni að fjárlögum í sumar sem birtist okkur síðan ekki fyrr en eftir kosningar fyrir þá ríkisstjórn til að bæta einhverju við eða eitthvað því um líkt. Ég myndi telja það í rauninni mjög heiðarlegt að leggja fram alla vega þann grunn að fjárlagafrumvarpi til þess að hægt væri að tala um það hver grunnur fjárlaga sé fyrir komandi ár fyrir kosningar, þannig að við getum öll átt mjög upplýsta umræðu um það hver staðan er. En það á að fela þetta fram yfir kosningar og ég átta mig ekki á af hverju.