157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Við afgreiðum hér í dag sem lög breytingar er varða jafnlaunavottun. Ég er mjög ánægð með vinnu þingsins í þessu máli. Ríkisstjórnin lagði við hlustir. Við höfum hlýtt á gagnrýni, áhyggjur og sjónarmið atvinnulífsins og erum að létta á þessu kerfi. Ég vil hins vegar árétta það mjög skýrt hér inni við afgreiðslu þessa máls að markmið um launajafnrétti eru óbreytt og eru hin sömu og þar munum við heldur ekki gefa neinn afslátt.