144. löggjafarþing — 115. fundur,  29. maí 2015.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

770. mál
[12:47]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Ég vildi fyrst og fremst benda á að mér þótti þingmaðurinn geta verið aðeins jákvæðari, því að hvað er að gerast? Við erum að fara af stað með málaflokk sem hefur setið á hakanum og ég benti á að það hefði kannski ekki gengið alveg jafn vel og þingmaðurinn vildi vera láta í ræðu sinni. Ég veit ekki betur en að hann hafi hálfpartinn gengið um með hauspoka í sínu kjördæmi, ég nefni Norðfjarðargöng og annað sem haldnir voru miklir borgarafundir um vegna þess að það gekk ekki neitt. En auðvitað tókst það og við framsóknarmenn studdum það. Við höfum (Gripið fram í.) staðið okkur mjög vel í samgöngumálum. Ég hvet þingmanninn til þess að svara mér hérna, þetta er andsvar, í staðinn fyrir að kalla fram í.

Það sem ég vil fyrst og fremst hvetja þingmanninn til að gera er að líta til þess góða samstarfs sem náðist hér á síðasta kjörtímabili í mörgum brýnum málum, vegna þess að oft er það ekki ríkisstjórnin, eins og gerðist í ríkisstjórn hv. þingmanns á síðasta kjörtímabili, sem kemur málum áfram. Það var til dæmis ekki meiri hluti fyrir Vaðlaheiðargöngum. Það þurfti aðstoð frá stjórnarandstöðunni og þar stóðum við framsóknarmenn okkar plikt. Ég vonast til þess að hv. þingmaður komi með okkur, vinni að góðum málum. Við erum sammála um mjög margt. Við erum sammála um að finna þurfi meira fé og ég vona að hv. þingmaður — ég hef kannski misskilið hann en mér fannst hann vera frekar neikvæður fyrir því þegar ég sagði að við færum kannski að sjá til lands í því á næsta ári. Hagtölur sýna að það eiga að vera til meiri peningar í ríkissjóði. Ef það eru til meiri peningar í ríkissjóði verður hægt að fara í mikilvæg samgönguverkefni og (Forseti hringir.) til dæmis halda áfram með ýmis góð málefni í okkar ágæta kjördæmi.