157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:31]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þegar ég sat hér eitt kvöldið í vikunni í hliðarsal Alþingis og hlustaði á áhugaverðar umræður þá kíkti ég í símann minn á island.is og sá að þar birtist námsmat barnanna minna. Ég er með þrjú börn á grunnskólaaldri, þar af eitt í 4. bekk og annað í 7. bekk, og þarna birtust sem sagt niðurstöður í fyrsta sinn í svokölluðum matsferli. Við samþykktum lög um matsferil fyrir um ári síðan og þarna birtust niðurstöður barnanna minna í stærðfræði og íslensku, annars vegar hvernig þau stóðu sig á þessu samræmda prófi og hins vegar hvernig þau standa sig á móti öllum nemendum í sama árgangi á landsvísu.

Ég ætla að segja það, virðulegur forseti, að ég hef aldrei á þeim sjö árum sem ég hef verið með börn í grunnskóla haft jafn góða innsýn í stöðu náms, hvar börnin mín standa námslega, og eftir að ég sá þessa niðurstöðu. Þarna sé ég mismunandi námsþætti, hvar þau standa sig vel, hvar þau eru í meðaltali og hvar þau þurfa viðbótarstuðning. Það stendur meira að segja á blaðinu í einum matsþætti að hér þurfi umræddur nemandi viðbótarstuðning og þarna ætlum við foreldrarnir að stíga inn og vinna með barninu okkar, vinna með skólanum, hann á að stíga upp í þessum matsþætti. Þetta er algjört grunnatriði til að geta stutt við börnin sín til að þau nái árangri í grunnskóla. Mér finnst í raun magnað að við höfum verið að samþykkja þessi lög í fyrsta sinn á síðasta ári og ég fagna því mjög.

En þetta er ekki bara bylting fyrir okkur foreldrana og nemendurna því að þetta nýtist líka skólunum, sveitarfélögunum og stjórnvöldum, okkur sem hér erum, til að setja alvörumenntastefnu og ákveða hvernig við ætlum að bregðast við og styðja við skólann okkar og tryggja að nemendur úti um allt land fái stuðning; að þau sem þurfa stuðning fái stuðning og að þau sem þurfa auknar áskoranir fái auknar áskoranir. Þetta er líka undirstaðan fyrir nýja atvinnustefnu Íslands. Við ætlum að leggja meiri áherslu á háframleiðnistörf þar sem við þurfum öfluga námsmenn, öfluga einstaklinga, sem skapa verðmæti fyrir íslenskt samfélag, verðmæti sem byggja undir velferðina hér á landi. Hér erum við að leggja algjöran grunn fyrir hagsæld Íslands til framtíðar.