samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðiserindi. Hann gerði að umtalsefni, og kom mér svo sem ekki á óvart, meðal margs annars, veginn í Bárðardal. Þá get ég upplýst bæði hv. þingmann og þingheim allan um að Jón landpóstur fór með 11 dekk á einu sumri í Bárðardal. Það er staðan á veginum þar.
En mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann ekki ósvipaðrar spurningar og ég spurði hv. þm. Jens Garðar Helgason hér fyrr, að sjálfsögðu út í annan kafla þó. Ég finn hvergi — við förum nú fljótlega, held ég, að kalla þetta hér í þessum sal týnda vegi — veginn um Útkinn í þessari samgönguáætlun né heldur í þessari breytingartillögu. Hv. þingmaður getur kannski aðstoðað mig við það ef mér er að yfirsjást þetta einhvers staðar. Svo því sé haldið til haga, af því að hér var talað um Svarfaðardal og mjólkurbú, þá er neðsti bærinn í Útkinninni Björg og þar er myndarlegt mjólkurbú auk annarra jarða þar sem er búskapur. Auðvitað eru þetta, eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason nefndi, ekkert annað en fyrirtæki. Sá vegur er annarrar gerðar en vegurinn í Breiðdal þótt ónýtur sé. Hann er fyrst og fremst drulla. Ef hv. þingmaður getur upplýst mig um að þetta hafi farið fram hjá mér þá myndi ég þiggja það.
Síðan er annað sem mig langar að nefna við hv. þingmann sem veldur mér miklum vonbrigðum og það er að horfa á þessa áætlun og sjá væntanlega brú yfir Lagarfljót ekki á áætlun hér, ef ég les þessa töflu rétt, fyrr en á tímabilinu 2036–2040. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því að hv. þingmaður leiðrétti mig ef ég er að lesa þessa töflu vitlaust.