fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innanríkisráðherra fyrir gott svar. Ég var mjög glaður að heyra að hún minntist á mörg smærri verkefni víðs vegar um landið. Það eru ýmsir vegir, héraðsvegir og tengivegir, sem þarfnast viðhalds og eru löngu komnir á tíma. Vonandi sjáum við meira í þeim efnum þegar fram í sækir.
Hún nefndi hér uppvöxtinn í ferðamannaþjónustu sem er orðin stærsta tekjulind okkar. Ég fagna því sérstaklega að hér sé verið að taka tillit til þeirra þátta. Ég nefni Dettifossveg sem hefur lengi staðið til að fara í en hefur því miður verið frestað vegna þess að fjármagn hefur skort. Þetta býr til mjög mikilvæga hringtengingu á Norðausturlandi sem fullkomnar hinn glæsilega demantshring sem gerir það að verkum að ásókn ferðamanna mun væntanlega aukast á þetta svæði. Því miður hefur fjölgunin ekki verið nægjanleg í Hljóðaklettum og Ásbyrgi. (Forseti hringir.)
Mig langar að fagna þessu sérstaklega. Það væri gott að fá meiri viðbrögð frá (Forseti hringir.) innanríkisráðherra varðandi einmitt þessa tengingu við þá mikilvægu (Forseti hringir.) atvinnugrein sem ferðamannaiðnaðurinn er.