157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:38]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Enn á ný fáum við neikvæðar fréttir af veltihringrás Atlantshafsins, AMOC-straumnum, því nú ætla bandarísk stjórnvöld að fjarlægja mælitæki í Grænlandshafi sem hafa nýst vísindamönnum til að fylgjast með styrk veltihringrásarinnar. Við verðum að gefa mögulegri veikingu og mögulegu rofi veltihringrásar Atlantshafsins vegna loftslagsbreytinga undanfarin ár meiri gaum og tryggja áframhaldandi rannsóknir. Veltihringrásin, fyrir þá sem ekki vita, flytur hlýjan sjó sunnan úr höfum hingað norður til okkar og gerir það að verkum að loftslagið á Íslandi er eins milt og raun ber vitni. Nú hafa vísindamenn fært rök fyrir því að kuldapollur sem er að myndast sunnan við Ísland sé til kominn vegna breytinga í hafinu. Það virðist vera að koma í ljós að þetta kalda hafsvæði suður af Íslandi tengist veikari hringrás í hafinu sjálfu en afmarkað svæði í Norður-Atlantshafinu sunnan við Ísland og Grænland er eina hafsvæðið á jörðinni sem hefur kólnað verulega á undanförnum árum. Nýleg rannsókn gefur til kynna að möguleikinn á verulegri veikingu AMOC og jafnvel hruni hans vegna áframhaldandi hlýnunar jarðar hafi verið vanmetinn til þessa. Höfundar rannsóknarinnar segja að veiking AMOC sé gríðarlegt áhyggjuefni fyrir samfélag manna á norðurslóðum, t.d. á Íslandi. Þeir leggja áherslu á að stjórnmálamenn taki áhættuna til skoðunar strax. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur talað um veikingu hringrásarinnar sem þjóðaröryggismál í ljósi þess hversu afdrifaríkar afleiðingar hennar yrðu fyrir Ísland. Loftslagsráð, ráðgjafaráð sem er stjórnvöldum innan handar um loftslagsmál, hvatti stjórnvöld til að grípa til stóraukinna aðgerða til að koma í veg fyrir frekari hlýnun í minnisblaði sem það sendi ráðherra.

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt fyrir okkur þingmenn að vera vakandi hvað þessi mál varðar því að ef ekkert verður að gert getur það valdið okkur Íslendingum varanlegum skaða. Ég skora á stjórnvöld að taka málið föstum tökum.