samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Það kom fram í máli flugstjóra hjá Icelandair fyrir viku síðan varðandi Airbus 321 þar sem hann benti einmitt á það sem ég kom inn á rétt áðan, mikilvægi þess að Airbus-vél geti notað Reykjavíkurflugvöll. Það er ekkert mál. Hann benti á þetta: 1.300 m fyrir flugtakið og hann kæmist til Kaupmannahafnar með vélina. Varaflugvellirnir ganga fyrst og fremst út á að það sé hægt að lenda þegar neyðin kemur. Þú ert ekki með fullhlaðna vélina einu sinni. Það er annað en að reka flugvelli í fullum rekstri, þá þarf kannski lengri brautir. Ég hef ekki tíma til að fara inn á það. En hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom inn á það sem ég komst ekki inn á áðan, þ.e. um mikilvægi þess að berjast við fjölþáttaógnir. Gamli aðflugsbúnaðurinn að flugvöllum landsins, ILS, NTP, aðflugsvitar og slíkir hlutir sem eru kannski 60–65 ára gamlir, það er mikilvægt að þeim verði haldið við en ekki rifnir niður vegna þess að fjölþáttaógnir snúast einmitt um gervihnattaleiðsögu, EGNOS og slíkan búnað þar sem „jamming“ og „spoofing“ eru risamál. Það er mikilvægt að við á þingi, og þetta hef ég oft rætt hér í þingsal, komum með skýrar leiðbeiningar um það. Það er ekkert minnst á þetta í þessu nefndaráliti. að huga að þessu varðandi fjölþáttaógnir og „jamming“ og „spoofing“.