Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Virðulegi forseti. Við þekkjum vandann, við höfum öll rætt hann og nú er tækifæri. Það er aldrei betra tækifæri en núna til að minna á þetta. Það er mjög ósanngjarnt að halda því fram að ekkert hafi verið gert og reyndar stenst það nákvæmlega enga skoðun. Þetta var í forgangi á síðasta kjörtímabili og margt fært til betri vegar með áþreifanlegum árangri og hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, fagnaði því mjög þegar við fundum heita vatnið í Ísafjarðarbæ en gleymdi að minnast á það hér. En ef menn ætla að koma á Hvalárvirkjun þá þurfum við auðvitað að klára að leggja veginn á Ströndum, sem kostar milljarð. Við erum núna með samgönguáætlun og við þurfum að hafa hraðar hendur. Við fögnum því að það sé verið að skoða hluti til einföldunar eða að framkvæma því að margt var tilbúið þegar hæstv. ráðherra kom í ráðuneytið og honum til hróss hefur hann fylgt þeim málum eftir og komið fram með þau mál. En núna er tækifæri. Það hefur aldrei verið stjórnarandstaða á Alþingi Íslendinga sem hefur hvatt ríkisstjórn jafn mikið í þessum málum og núna, aldrei. Ég þekki það alveg að hafa stjórnarandstöðu sem er ekki að hvetja mann og reynir að þvælast fyrir málum. Það var það sem maður bjó við. En látum það liggja milli hluta.
Við þurfum að halda áfram í jarðhitanum. Við þurfum að halda áfram með smávirkjanirnar. Þetta tvennt tekur skemmstan tíma. En ef menn ætla að fara í virkjunarkostinn sem tekur skemmstan tíma og er með fullan stuðning stjórnarandstöðunnar, fullyrði ég, þá fara menn í Vatnsdalsvirkjun. Allir sem nálgast það lausnamiðað geta gert hvort tveggja, virkjað þar og komið á þjóðgarði sem er segull, allir. Það er einfaldasti hlutinn til þess, ódýrasti, hagkvæmasti og besti, að fara þá leið. Ég vona að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) endurskoði þá ákvörðun sína að hafa slegið það út af borðinu. Menn halda auðvitað áfram með allt hitt, (Forseti hringir.) við styðjum það. En ef menn virkilega vilja leysa málið hratt og vel þá fara menn í Vatnsdalsvirkjun.