157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

innleiðing reglugerðar um losun frá sjóflutningum.

[11:14]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kærlega fyrir svarið. Ég skil það þannig að það sé þá mat stjórnvalda að það sé rétt að stefna að upptöku umræddrar reglugerðar í EES-samninginn fyrr en seinna. Mig langar þá, í ljósi svara ráðherra, að spyrja, af því að við vitum auðvitað og höfum séð í umsögnum að það eru áskoranir þarna: Til hvaða aðgerða hyggjast stjórnvöld grípa til að tryggja að innviðirnir séu til staðar til að mæta þeim þörfum sem reglugerðin setur fram? Einnig: Telur ráðherra tilefni til að kanna möguleika á einhvers konar aðlögun við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn, t.d. lengri frestum eða einhverjum öðrum leiðum til að það sé tekið tillit til okkar hagsmuna og þar með talið hagsmuna smærri hafna og hinna dreifðari byggða?