Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Forseti. Það er nýafstaðið orkuþing á Vestfjörðum sem haldið var á Ísafirði og niðurstaðan þar var að Hvalárvirkjun muni rísa en hún hefur verið í nýtingarflokki lengi, eins og áður er sagt. Vissulega hafa staðið deilur um hana og það hefur ekki fengist niðurstaða um hvernig þessi tengikostnaður vegna raforkukerfisins, milli virkjunaraðila og Landsnets, verði leystur og heyri ég á ráðherra að hann ætli að skoða það. Virkjanir á Vestfjörðum eru samanlagt um 260 GWst og þar er Mjólkárvirkjun stærst, um 11 MW yfir veturinn. Það skiptir vissulega máli að við höfum þessa dísilrafstöð í Bolungarvík sem er álíka stór og Mjólkárvirkjun, það skiptir máli, en hún er auðvitað ekki umhverfisvæn. Ein af ástæðunum fyrir veiku kerfi á Vestfjörðum er hversu lítið er framleitt af raforku í fjórðungnum og að meginhluti þeirrar orku sem nýtt er á Vestfjörðum er fluttur um langan veg, um Hrútatungu, og flutningskerfið er ekki nógu gott. Ekki er um að ræða hringtengingu á svæðinu nema að örlitlu leyti og stendur það orkuskiptum fyrir þrifum. Þrátt fyrir að unnið sé að úrbótum gengur það hægt og vaxandi þörf er fyrir raforku á svæðinu. Til að mynda er í þessum töluðu orðum verið að reisa verksmiðju Íslenska kalkþörungafélagsins við Langeyri í Álftafirði. Sú verksmiðja þarf 8–10 MW og verður það leyst með lagningu jarðstrengs frá Ísafirði. Þessari aflþörf er ekki mætt á annan hátt en að flytja orku inn á svæðið og því hefur Orkubú Vestfjarða sé það m.a. sem góðan kost að virkja í friðlandinu í Vatnsdal í Vatnsfirði og það kemur í ljós hvað kemur út úr því. Verksmiðjan í Súðavík er mikilvæg fyrir Vestfirðinga með útflutningstekjur sem taldar verða í milljörðum og 30–35 beinum störfum.
Það er mikilvægt að endurnýja og tryggja flutningskerfi til Vestfjarða og tengingu innan þeirra og heimilum og fyrirtækjum á Vestfjörðum sé tryggð næg orka. Þess vegna ítreka ég spurningu mína til hæstv. ráðherra: Hvernig er hægt að tryggja það að sú orkuframleiðsla sem fer fram á Vestfjörðum gagnist Vestfirðingum en fari ekki út úr fjórðungnum?