Raforkuöryggi á Vestfjörðum.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög góð umræða og hér hefur margt skynsamlegt komið fram. Það er mjög ósanngjarnt að halda því fram að ekkert hafi verið gert, sagði hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Ég held að enginn hafi verið að halda því fram. Það sem var hins vegar verið að benda hér á, bæði af minni hálfu og annarra, er að það voru gerðar mjög skaðlegar lagabreytingar í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins sem hafa torveldað uppbyggingu hagkvæmra virkjunarkosta á Vestfjörðum. Það var beinlínis farið í það að læsa Landsnet inni í mjög þröngu excel-skjali sem gerir það að verkum að arðbærir og hagkvæmir virkjunarkostir verða óraunhæfir. Ég heyrði engar skýringar á því hér í dag hvað mönnum gekk til þegar þessar breytingar voru gerðar. Ég vona að ég heyri þær skýringar einhvern tímann, en svona er þetta nú bara.
Við getum alveg tekið umræðu um Vatnsdalsvirkjun, það er bara besta mál. Forveri minn í embætti sat á beiðni um Vatnsdalsvirkjun í hátt í tvö ár. (Gripið fram í.) Jú, jú. Nú segir hann að þetta sé nærtækasti kosturinn þótt þetta sé kostur sem myndi þá útheimta breytingar á friðlýsingarskilmálum, kostur sem á eftir að rannsaka að verulegu leyti, kostur sem á eftir að fara í gegnum rammaáætlun, kostur sem viðkomandi sveitarfélag, sem á eftir að þurfa að skipuleggja og gefa út framkvæmdaleyfi, er algerlega á móti. Ég get ekki tekið undir það að þetta sé nærtækasti kosturinn og þetta er heldur ekki kostur sem uppfyllir þær kröfur og þau markmið sem ég nefndi hérna áðan varðandi Hvalárvirkjun. Við vitum alveg hvað þarf að gera. Hámarksálag á Vestfjörðum í dag er um 50 MW en samkvæmt raforkuspá verður það 70 MW eftir tíu ár. Hvalárvirkjun, Miðdalstengipunkturinn og hinar virkjanirnar sem geta tengst þarna inn, Austurgilsvirkjun og Skúfnavatnavirkjun, ég er ekki að útiloka aðra kosti með þessu en það er þessi punktur. Það er þetta sem á að vera í forgangi vegna þess að þetta myndi gera Vestfirði beinlínis orkusjálfbæra, orkusjálfstæða.
Hinn kosturinn, (Forseti hringir.) að sleppa því að fara í lagabreytingarnar sem ég nefndi hérna, fylgja bara stefnu fyrri ríkisstjórnar um tvítengingar án tillits til nýrrar orkuframleiðslu (Forseti hringir.) og svoleiðis, myndi þýða verulegan aukinn kostnað sem myndi leggjast á alla notendur og skerða samkeppnishæfni á Vestfjörðum. Þess vegna erum við að breyta um kúrs, (Forseti hringir.) þess vegna erum við með breytta stefnu í orkumálum og þess vegna munum við fylgja þessu fast eftir og ég er í engum vafa um að það mun ganga eftir.
(Forseti (BHar): Forseti minnir á tímamörkin.)