149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:36]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Jú, þetta er kannski sá viðsnúningur sem maður á erfiðast með að skilja. Við höfum náttúrlega talað um að samfylkingarflokkarnir vilja fara inn í kaldan faðm Evrópusambandsins og samþykktu þetta mál, alla vega einhverjir þeirra, áður en þeir sáu hvernig það var búið. Það er út af fyrir sig skiljanlegt vegna þess að þetta er þeirra stjórnmálaskoðun, sú eina. En að Vinstri græn skuli taka þessa U-beygju og verða fánaberar markaðsvæðingar orkuauðlinda Íslands — það er eitthvað sem ég verð að viðurkenna, hv. þingmaður, að ég skil ekki alveg. Ég er ekki búinn að fá skýringu á því. Það hefur enginn mætt frá Vinstri grænum í þessa umræðu til þess að útskýra það fyrir okkur og segja frá því hvað það er sem veldur. Það hlýtur að vera einhver gylling á kappanum á þessu máli sem verður til þess að menn skipta svona gjörsamlega um skoðun, en við höfum ekki fengið að frétta af því, hvað þá kjósendur þeirra, sem ættu nú kannski skýringuna skylda frekar en við.