149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:04]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það kemur mér ekkert á óvart að skiptar skoðanir séu um þetta mál en ég vissi reyndar ekki alveg að það skiptist svona jafnt. Helmingur þjóðarinnar er á móti orkupakka þrjú ef ég skil orð hv. þingmanns rétt. Þar með tel ég okkur hafa fullan grundvöll til að halda þessari umræðu áfram vegna þess að ný og ný atriði eru að koma í ljós. Ég vil taka undir það hér að orkustefna fyrir Ísland ætti að hafa forgang til að máta við, það gæti verið grunnur, hverju orkustefna Evrópusambandsins vill koma til leiðar, ef ég get sagt það þannig, að við séum fyrst með okkar forsendur og mátum það síðan við aðrar stefnur, en mér sýnist eiga að fara akkúrat í hina áttina.