ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum svarið. Lítill fugl hér á hliðarlínunni hvíslaði því að mér að það hefðu meira að segja verið 62% í þessari skoðanakönnun sem væru á móti því að innleiða pakkann. Ég heyrði það líka í ræðu þingmannsins að fólk væri meira að vakna til vitundar um það sem þingmaðurinn gagnrýndi í ræðu sinni, þ.e. að við værum oft að innleiða eitthvað og samþykkja hér í þinginu sem við hefðum ekki getað fjallað mikið um eða komist inn í. Hún nefndi þar á meðal persónuverndarmálið sem komið var í gegn í fyrra og margar stofnanir og fyrirtæki gagnrýndu eða voru óviðbúin að taka við. Menn þurftu að gera mikið rusk í sínum fyrirtækjum til að geta tekið við því, það er eitt dæmið af mörgum.
Þá spyr ég aftur: Eru þessi rök ekki bara það stór að við stoppum hér og hugsum málið betur? Það liggur ekkert á.