150. löggjafarþing — 119. fundur,  18. júní 2020.

heimilisofbeldi.

883. mál
[11:53]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þessa góðu umræðu og koma inn á nokkur atriði sem beint var til mín. Ég tek undir með hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um að allt ferlið varðandi heimilisofbeldi þurfi að skoða betur, eins og gert var með kynferðisbrot þegar farið var í átak undir forystu þáverandi ráðherra, Ólafar Nordal, um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins þar sem allt kerfið og öll skrefin voru skoðuð og endurskoðuð. Sú vinna er enn í gangi. Margt hefur verið gert til bóta og enn þá er unnið að því að bæta annað. Það er auðvitað verkefni sem sífellt má bæta. Ég tek undir með hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni um að aðgerðateymið sem við settum á laggirnar gegn Covid er einmitt til þess fallið að greina sérstaklega hvernig aukningin er, af hverju og hvað er hægt að gera til að bregðast betur við næst.

Það sem var gott og fór af stað strax í upphafi faraldursins og þeirra efnahagsþrenginga sem blöstu við var sérstakt átak lögreglunnar um að hvetja til tilkynninga, sem var beint að þolendum og ekki síst börnum, þ.e. sérstakar auglýsingar og annað til að reyna að koma því til þeirra hvernig væri hægt að tilkynna brot, hvatning til þess og skýrar leiðbeiningar. Það fór strax af stað og skilaði sér vonandi í auknum tilkynningum, sem er auðvitað mikilvægt.

Ég tek undir að við þurfum að vera á sérstöku varðbergi í þeim þremur umdæmum þar sem brotum fækkar eða fjöldi stendur í stað, á Vestfjörðum, í Vestmannaeyjum og á Norðurlandi vestra. Þeim fer síðan örlítið fjölgandi á Vesturlandi en eru þó enn talsvert færri en 2018. Það eru þessi fjögur umdæmi. En þetta eru fá mál og kannski sjáum við frekar einhverja fylgni í stærri umdæmunum.

Ég tek annars undir með hv. þingmanni að þjónustan við þolendur þarf að vera til staðar á öllu landinu. (Forseti hringir.) Við þurfum auðvitað að tryggja það. Ég þakka annars hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni fyrir umræðuna og hvatninguna í þessum málaflokki. (SPJ: Takk sömuleiðis.)