142. löggjafarþing — 12. fundur,  25. júní 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

11. mál
[16:48]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg hárrétt, þar greinir okkur á. Ég hef fært rök fyrir afstöðu minni sem lýtur að því að ég tel að þessi fimm manna valnefnd sem lagt er upp með sé ekki merki um mjög breiðan grunn; enn og aftur, þrír frá Alþingi, einn frá Bandalagi íslenskra listamanna og einn frá samráðsvettvangi háskólamanna. Ég tel að það sé ekkert sérstaklega breiður grunnur. Ég tel að breiðasti grunnurinn sé Alþingi sjálft.

Ríkisútvarpið er á ábyrgð Alþingis. Lögin um Ríkisútvarpið koma frá Alþingi. Það skiptir verulega miklu máli hvernig á þeim málum er haldið. Ég er þeirrar skoðunar að það fyrirkomulag að Alþingi velji stjórnarmennina sé lýðræðislegt, gegnsætt og sé líka ágætlega til þess fallið að ná árangri, þeim árangri sem stefnt er að með lögunum, því að þegar búið er að skipa stjórnina þá situr hún. Það er ekki jafngildi þess að Alþingi skipti sér af þessum málum. Það er búið að skipa stjórnarmenn og þeir sitja þarna með sitt umboð. En það er eins (Forseti hringir.) og gert sé ráð fyrir því að þar með sitji þeir allir og bíði (Forseti hringir.) eftir einhverjum tilskipunum frá stjórnmálamönnum af því að Alþingi skipar þá. Ég tel ekki að svo verði.