Störf þingsins.
Frú forseti. Það var hálf kostulegt að fylgjast með hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrstu tvö ár sín í embætti þegar hann velti á undan sér því brýna og sjálfsagða verkefni að uppfæra aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Töfina réttlætti hann alltaf með því að hann væri að beita alveg nýrri aðferðafræði, annað eins hefði ekki sést á Íslandi áður. Hver var sú aðferðafræði? Hún var að eiga samráð við atvinnulífið. Það er ekkert ný aðferðafræði. Það hefur bara oft verið gert. Það sem ráðherrann hins vegar gerði var að hann útvistaði stefnumörkuninni til ákveðinna geira atvinnulífsins frekar en að taka pólitíska forystu á stefnumörkun í loftslagsmálum, vegna þess að ríkisstjórn Íslands er ekki með stefnu í loftslagsmálum. Þetta samráð við atvinnulífið risti það grunnt að við sáum t.d. molna undan rafbílavæðingunni þegar ríkisstjórnin ákvað að gera eitthvað sem atvinnulífið mælti alls ekki með og breytti reglunum um ívilnanir til rafbíla undir lok síðasta árs. En gott og vel. Það er afar afhjúpandi varðandi þessa gjörbreyttu aðferðafræði sem ráðherrann segist vera að beita að ekkert samráð var á sama tíma haft við verkalýðshreyfinguna eða náttúruverndarsamtök, lykilaðila í að móta heildstæðar aðgerðir sem ná til alls samfélagsins og tryggja réttlæti og árangur. Nei, nei, það fólk mátti bara koma inn á samráðsgáttina þegar málið væri klárað af atvinnulífinu.
Þetta kemur okkur kannski ekki á óvart sem þekkjum til orðræðu ráðherrans. Hann er ekki mjög heitur í loftslagsmálum nema til að réttlæta önnur áhugamál sín. Hans vegferð birtist t.d. á ársfundi Orkustofnunar þar sem ég sat í salnum og hlustaði á enn eina ræðuna um það að hér þurfi nú að fara að keyra í gang almennilega framleiðslu á rafeldsneyti vegna þess að ráðherrann vill ekki að norska grýlan komi hingað með sitt norska rafeldsneyti í framtíðinni. Við þurfum að vera með íslenskt eldsneyti á íslensku bílana. Hér þarf að staldra við, forseti. (Forseti hringir.) Það er ekki sjálfsagt að ódýr raforka sé notuð til að framleiða ódýra hrávöru, hvort sem það heitir rafeldsneyti eða ál. (Forseti hringir.) Við eigum þessa sögu, við þekkjum hana og þessi kynslóð sem stjórnar núna (Forseti hringir.) hefur ekki umboð til að botnvirkja auðlindir Íslands frá komandi kynslóðum. — Afsakið, forseti.
(Forseti (OH): Forseti vill minna hv. þingmann á að ræðutími í störfum þingsins er tvær mínútur.)