155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Húnavallaleið.

52. mál
[16:46]
Horfa

Þorgils Magnússon (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir flutning á þessari tillögu um Húnavallaleið. Ég er mjög ánægður með það að þessi tillaga er flutt hér í dag því að ég tók sæti á þingi í fyrsta skipti í gær og get því tekið þátt í þessari umræðu. Ég er heimamaður, ég bý á Blönduósi og er fæddur og uppalinn í Austur-Húnavatnssýslu og þekki því svæðið nokkuð vel. En mér þykir miður að verið sé að flytja tillögu um skoðun á nýjum vegi eða hraðbraut þvert yfir Húnabyggð. Um er að ræða veg sem íbúar héraðsins munu hafa takmörkuð not fyrir. Ég legg áherslu á að vegir landsins eiga ekki aðeins að koma íbúum af landsbyggðinni til Reykjavíkur heldur þarf samhliða og ekki síður að tengja saman byggðir. Húnvetningum er gefið langt nef með þeirri tillögu sem hér er lögð fram. Íbúar í Svartárdal, Blöndudal, Svínadal og Vatnsdal ásamt byggðinni á Skaga búa að mestu leyti við lélega malarvegi. Ekki er ástandið betra í Húnaþingi vestra en allir vita hvernig Vatnsnesvegur er og fleiri vegir á þeim slóðum. Að stærstum hluta eru þetta þröngir malarvegir, seinfærir með mikilli slysahættu. Um þessa vegi eru fjölmörg börn að fara í skólann kvölds og morgna allt árið um kring.

Sú leið sem hér er lögð til mun liggja í gegnum ósnortið landsvæði að mestu leyti, þ.e. þetta er nýtt vegstæði. Á leiðinni eru tvær ár sem þarf að brúa. Önnur þeirra er yfir jökulána Blöndu. Vegurinn mun væntanlega liggja meðfram friðsælli skógrækt í svokölluðum Bakásum og á eyrum Blöndu er kominn vísir að sjálfsánum skógi sem myndi raskast að hluta við þessar framkvæmdir. Norðurland vestra á Íslandsmetið í lengd malarvega. Væri ekki ráð að byggja þá upp og leggja á þá slitlag til að auka umferðaröryggi? Nokkrir dagar eru síðan ferðamaður lét lífið á veginum út á Skaga þar sem lélegur malarvegur og einbreið brú kom við sögu.

Eitt dæmi um mikilvæga aðgerð sem ég tel að fjármunum væri betur varið í er að gera jarðgöng í gegnum Tröllaskaga og tengja þannig saman byggðir Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Við Húnvetningar þekkjum vel hve mikil og jákvæð áhrif það hafði á byggð og atvinnu í Skagafirði og í Húnavatnssýslum þegar Þverárfjallsvegur var byggður upp á sínum tíma. Tenging milli þessara svæða og Eyjafjarðar myndi á sama hátt efla byggð og atvinnu og gera samgöngur auðveldari fyrir alla með því að losna við heiðarveginn yfir Öxnadalsheiði.

Húnavallaleið myndi þýða að vegakerfið lengist um 17 km. Þessum vegi þarf að halda við og það þarf að moka af honum snjó. Það er ekki verið að stytta vegakerfið sem við eigum og eigum við erfitt með að halda því við. Talað er um öryggi í þingsályktunartillögunni, en eiga þeir sem enn þurfa að nota núverandi veg að búa við óöryggi eins og talað er um í tillögunni? Ég á von á því að ef þessi nýja leið verður gerð muni gamli vegurinn sitja á hakanum í viðhaldsverkefnum eins og við Húnvetningar höfum oft horft upp á. Einnig má benda á það að þeir viðbragðsaðilar sem munu sinna þessum nýja vegi eru staddir á Blönduósi og mun viðbragðstími þeirra lengjast á þjóðvegi 1, af því að það verður langur kafli að keyra að þessum nýja vegi. Ég sem formaður Björgunarfélagsins Blöndu og slökkviliðsmaður á Blönduósi veit hve mikilvægt er að hafa greiða leið frá björgunarstöð á vettvang slysa. Það getur skipt máli, mínútur geta bjargað mannslífum. Og ef við hugsum bara út frá þjónustunni sem veitt er á Blönduósi þá verður u.þ.b. 12 km vegarkafli annars vegar og hins vegar 15 km að þéttbýlinu frá þessari nýju leið og þetta lengir einnig leiðina til Skagastrandar um sömu kílómetra. Þúsund bílar á sólarhring gegnum þéttbýlið er bara ágætisveganesti fyrir þá rekstraraðila í þéttbýlinu sem bjóða upp á þjónustu.

Virðulegur forseti. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson sagði við umræðu um flugvöll í Hvassahrauni, með leyfi forseta:

„Við erum að sjá vegina grotna niður og almennt grunninnviði landsins. Við þurfum að halda áfram að byggja þá upp og styrkja.“

Ég er alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni. Við þurfum að halda áfram að byggja upp og styrkja og ég sé því engar forsendur fyrir frekari skoðun á Húnavallaleið.