148. löggjafarþing — 12. fundur,  29. des. 2017.

fjáraukalög 2017.

66. mál
[15:57]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Nei, í sjálfu sér kom staðan ekki fram í nefndinni hjá okkur, fjárlaganefnd. Þetta heyrir náttúrlega undir allsherjar- og menntamálanefnd í rauninni, þ.e. málefni kirkjunnar. Við erum hins vegar fjárveitingavaldið hvað þetta varðar. Það er kannski eðli málsins samkvæmt að þegar við stöndum í einhverjum samningum þá viljum við án þess að sýna á öll spilin reyna að ná eins góðu samkomulagi fyrir báða aðila eins og hægt er. Þess vegna er kannski eðlilegt að þetta sé ekki sett inn í fjárlögin. Það kemur fram í áliti okkar að kirkjujarðasamkomulagið er aðeins einn þáttur í samskiptum ríkis og kirkju, svo eru það sóknargjöldin. Ég veit ekki nákvæmlega hvar þessar viðræður standa. En mér finnst eiginlega bara einboðið, af því að við erum hér að segja líka að við viljum að þetta verði klárað, að við þurfum ekki að takast á við þetta aftur í fjáraukalögum, með þessum hætti alla vega. Þá væri verið að ljúka einhverju. Ef það tækist að ljúka einhverju á næsta ári þá kemur það væntanlega í ljós, ef ekki næst að klára það með einhverjum varasjóðum og við munum ganga eftir því að það verði klárlega skoðað. En ef það gengur ekki eftir þá munum við væntanlega þurfa að takast á við þetta í fjáraukalögum.

Ég held að við eigum að kalla eftir því hvernig staðan er og fylgja þessu máli eftir og fylgja þeirri gagnrýni okkar eftir sem við höfum sett fram. Þannig horfir það við mér. En ég veit ekki, eins og hv. þingmaður spurði um, í hvaða átt samkomulagið er að fara. Það er líka vel hægt að leita upplýsinga um það. Og fleiri nefndir geta gert það heldur en bara fjárlaganefnd.