fjáraukalög 2017.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og samtalið. Það kemur ágætlega fram í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti að notkun varasjóða málaflokka er sáralítil, sem og almenna varasjóðsins, til að bregðast við þar sem er heimild til að bregðast við ófyrirséðum tilvikum, eins og segir m.a. í lagagrein. En ég held að það sé skýr vilji hv. nefndar að breyta því verklagi. Ég vil spyrja hv. þingmann í seinna andsvari, og þá út frá því að hafa verið starfandi ráðherra, hvort það þurfi ekki hreinlega leiðbeinandi regluverk fyrir ráðherra til að nýta betur varasjóðina áður en kemur að því að setja eitthvað í fjárauka.
Svo vil ég benda á að ef við tökum meginfrávikin sem falla undir lögin erum við kannski að tala um vel innan við 1% frávik. Það myndi á einhverjum bæjum þykja ágætisfjármálastjórn.