150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

ákvarðanir Sjúkratrygginga um kaup á hjálpartækjum.

[13:53]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það er rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns, Sjúkratryggingar Íslands eru stofnun sem er hluti af því framkvæmdarvaldi sem er í höndum heilbrigðisráðherra á hverjum tíma og er falið ákveðið hlutverk að lögum. Það er alveg ljóst að sú þjónusta sem Sjúkratryggingar Íslands veita er slík þjónusta, stofnunin fer með þjónustu við viðkvæma hópa. Það koma upp tilvik þar sem ástæða er til að gera athugasemdir. Sjúkratryggingar Íslands taka við þeim athugasemdum og svara þeim. Stofnunin fer að lögum og byggir á þeim lögum og reglugerðum sem við setjum, þ.e. lögum sem Alþingi setur og síðan reglugerðum sem ráðherra setur á hverjum tíma. Ef við komumst að því að þarna séu brotalamir reynum við að bæta um betur og ég er í þessu verkefni sem heilbrigðisráðherra til að gera mitt besta.